Skip to main content

Persónuvernd

1. Almennt

Snyrtistofunni Vilja ehf. er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Snyrtistofan Vilja ehf. safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

2. Um hverja safnar Snyrtistofan Vilja ehf. persónuupplýsingum?

Í starfsemi fyrirtækisins er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, þá sem skrá sig á póstlista og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.

3. Hvaða persónuupplýsingum safnar Snyrtistofan Vilja ehf. um þig?

Snyrtistofan Vilja ehf. safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því hvaða starfsemi fyrirtækisins er um að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Snyrtistofan Vilja ehf. við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.

Snyrtistofan Vilja ehf. safnar nauðsynlegum upplýsingum um starfsfólk, svo sem upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, samskipti, viðveru, laun og fleira. Einnig þarf fyrirtækið að halda til haga nauðsynlegum tengiliðaupplýsingum, svo sem nafni og netfangi, um starfsmenn viðskiptavina og aðra þriðju aðila. Að auki safnar Snyrtistofan Vilja ehf. nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini þegar við á, til dæmis nafni, kennitölu, netfangi, símanúmeri, heimilisfangi og upplýsingum um efni pöntunar. Þá safnar Snyrtistofan Vilja ehf. upplýsingum um netföng þeirra sem skrá sig á póstlista. Í húsnæði Snyrtistofunnar Vilja ehf. kunna að vera eftirlitsmyndavélar og því möguleiki á að viðskiptavinir séu teknir upp á mynd. Vinnsla á myndefni fer eingöngu fram í eigna- og öryggisvörsluskyni. Myndefni er geymt á stafrænu formi og er eytt innan 30 daga frá upptöku.

4. Af hverju safnar Snyrtistofan Vilja ehf. persónuupplýsingum um þig?

Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

  • Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðskiptavini.
  • Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, svo sem með rafrænu eftirliti
  • Gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
  • Uppfylla lagaskyldu.
  • Kynna ýmislegt sem tengist starfsemi fyrirtækisins, þ.e. þeim aðilum sem skrá sig á póstlista.

5. Á hvaða lagagrundvelli vinnur Snyrtistofan Vilja ehf. persónuupplýsingar um þig?

Snyrtistofan Vilja ehf. safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

  • Samþykki þínu.
  • Til að uppfylla samningsskyldu.
  • Til að uppfylla lagaskyldu.
  • Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
  • Til að gæta að lögmætum hagsmunum annarra.

6. Hve lengi geymir Snyrtistofan Vilja ehf. persónuupplýsingar um þig?

Snyrtistofan Vilja ehf. geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

7. Frá hverjum safnar nyrtistofan Vilja ehf. upplýsingum um þig?

Snyrtistofan Vilja ehf. safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun Snyrtistofan Vilja ehf. eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.

8. Hvenær miðlar Snyrtistofan Vilja ehf. þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?

Snyrtistofan Vilja ehf. miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum Snyrtistofunnar Vilja ehf. um meðferð og vinnslu persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.

9. Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Snyrtistofunni Vilja ehf. er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

10. Réttindi þín

Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

11. Öryggi persónuupplýsinga

Snyrtistofan Vilja ehf. hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglulega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.

12. Snyrtistofan Vilja ehf. – Samskiptaupplýsingar

Ef þú hefur frekari spurningar um hvernig Snyrtistofan Vilja ehf. meðhöndlar þínar persónuupplýsingar, þá eru þetta samskiptaupplýsingarnar okkar:

Nafn: Snyrtistofan Vilja ehf.

Heimilisfang: Borgartún 3, 105 Reykjavik

Sími: 517-9291

Netfang: vilja@vilja.is

13. Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd

Dragir þú í efa að Snyrtistofan Vilja ehf. meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).