Lýsing
Rauðljósa LED Panell fyrir líkamann. Panellinn er mjög sveigjanlegur, leggst auðveldlega á líkamann og veitir víðtæka og jafna dreifingu yfir svæði eins og: bak, maga, handleggi, fætur og hendur. Handfrjáls hönnun fyrir heimanotkun og hjálpar hún við að ná fram ljómandi og sléttari húð með reglulegri notkun. Hún hentar einnig vel við að viðhalda árangri á milli faglegra meðferða eða sem hluti af reglulegri sjálfsumhirðu.
Rauð og infrarauð LED ljósameðferð sem notar markvissar bylgjulengdir til að örva húðina og styðja við náttúrlegt endurnýjunarferli hennar.
Tækið er með 633 nm rauðu ljósi og 830 nm infrarauðu ljósi. LED panel tækið getur hjálpað við:
• Ásýnd húðar
• Slökun
Árangur:
Með reglulegri notkun getur tækið hjálpað við að:
• styðja við sléttari og heilbrigðari ásýnd húðar
• styðja við endurnýjun húðar og virkni kollagens
Árangur getur verið breytilegur eftir notkun.
Kostir
• Styður við mýkri og jafnara útlit húðar
• Hjálpar við að ná fram ljóma húðar
• Hannað til þess að nota yfir líkamann
• Styður við endurnýjun húðar
• Hentugt fyrir heimanotkun
• Fjölvirkt húðumhirðu tæki fyrir mismunandi svæði
Eiginleikar
• Háþróuð LED ljósatækni
• Sveigjanlegt og fjölhæft
• Hentugt fyrir daglega rútínu
• Stillanleg bönd
• Handfrjálst með tímalotum
Þarf ég að nota vörn fyrir augun?
Þegar spjaldið snýr að augum þínum mælum við með að nota meðfylgjandi hlífðargleraugu.
Notkunarleiðbeiningar
Notkunarleiðbeiningar:
1. Staðsetjið LED Panelið á meðferðasvæðið
2. Festið það með stillanlegu böndunum
3. Kveikið á tækinu og veljið þá meðferð sem hentar ykkur
4. 20 mínútna meðferðatími
5. Notið daglega sem partur af ykkar daglegu rútínu.