Lýsing
Lip Shield heldur vörunum mjúkum og rakaríkum, styður við myndun kollagens, eykur
fyllingu varanna og dregur sýnilega úr fínum línum og hrukkum. Jafnframt hjálpar varan til
við að vernda varirnar gegn frunsum.
Lip Shield
Lip Shield er fjölvirk dagleg varavörn sem sameinar næringu, umhirðu og öfluga vörn í einni
vöru.
Formúlan inniheldur peptíð, nærandi olíur, jurtakjarna og breiðvirka SPF 30 sólarvörn sem
ver varirnar gegn skaðlegum áhrifum sólar og hjálpar til við að draga úr ótímabærri öldrun
húðar af völdum útfjólublárra geisla.
Lip Shield heldur vörunum mjúkum og rakaríkum, styður við myndun kollagens, eykur
fyllingu varanna og dregur sýnilega úr fínum línum og hrukkum. Jafnframt hjálpar varan til
við að vernda varirnar gegn frunsum.
Lip Shield er mun meira en hefðbundinn varasalvi, þetta er háþróuð húðvöruformúla sem
veitir margþættan ávinning og styður við heilbrigði og útlit varanna til lengri tíma.
Ólíkt mörgum hefðbundnum varasalvum, sem sitja einungis á yfirborði varanna, bráðnar Lip
Shield inn í húðina þar sem hann veitir djúpa næringu og örvar náttúrulega myndun kollagens
og hýalúrónsýru. Það stuðlar að aukinni fyllingu varanna og dregur úr sýnileika fínna lína.
Nútímalegar, breiðvirkar UVA- og UVB-síur veita áhrifaríka sólarvörn á meðan nærandi olíur
og jurtakjarnar styrkja rakavörn húðarinnar og stuðla að mýkri, heilbrigðari og unglegri
vörum.
Alparós (Alpine Rose) er eitt af lykilinnihaldsefnum formúlunnar. Hún hjálpar til við að
vernda varirnar gegn frunsum og styður við hraðari endurnýjun húðarinnar.
- Ávinningur
- Hentar til daglegrar notkunar í öllum loftslagsaðstæðum, þar á meðal í mikilli hæð yfir sjávarmáli.
- Ver varirnar gegn ótímabærri öldrun og stuðlar að því að viðhalda kollageni húðarinnar.
- Hjálpar til við að vernda hýalúrónsýrufylliefni (HA filler degredation) í vörum gegn niðurbroti af völdum útfjólublárra geisla.
- Ver varirnar gegn skaðlegum áhrifum sólar, þar á meðal aukinni litamyndun, og styður við daglega sólarvörn varanna.
- Stuðlar að aukinni fyllingu varanna og dregur smám saman úr sýnileika fínna lína og hrukka.
- Endurnærir, róar og veitir djúpan raka, auk þess að mýkja þurrar og sprungnar varir.
- Dregur úr þurrki og hjálpar til við að minnka viðkvæmni varanna fyrir sólargeislum.
- Hjálpar til við að vernda varirnar gegn frunsum.
- Notkun
- Berið á varirnar daglega og áður en þær verða fyrir áhrifum veðurs eða annarra ytri áhrifa.
- Má nota eitt og sér eða sem verndandi grunn undir varalit, varablýant eða varagloss.
- Einnig má bera á yfir varalit til að veita aukinn raka og mýkt.
- Ef varirnar eru mjög þurrar eða rakasnauðar getur varasalvinn sogast hratt inn í húðina. Berið þá ríkulega á og endurnýið eftir þörfum.
- Eftir því sem ástand varanna batnar lengist tíminn á milli ásetninga.
- Fyrstu dagana geta dauðar húðfrumur losnað af yfirborði varanna sem eðlilegur hluti af endurnýjun húðarinnar.
- Haldið áfram reglulegri notkun á þessu tímabili til að stuðla að mjúkum, nærðum og heilbrigðum vörum.
- Nota má mjúkan, rakan múslínklút til að strjúka varlega yfir varirnar og fjarlægja lausar húðfrumur.
- Til að hámarka árangurinn er mælt með að bera Lip Shield á yfir daginn eftir meðferð með Lip Facial maskanum.
Innihaldsefni
Cera alba (beeswax) ∙ Simmondsia chinensis (jojoba) seed oil ∙ Olus oil ∙ Ricinus
communis (caster) seed oil ∙ Ethylhexyl methoxycinnamate (UV filter) ∙ Butyl
methoxydibenzoylmethane (UV filter) ∙ Octocrylene (UV filter) ∙ Vitis vinifera (grape)
seed oil ∙ Bis-ethylhexyloxyphenol methoxyphenymethane (UV filter) ∙ Hydrogenated
olive oil stearyl esters ∙ Sucrose tetrastearate triacetate ∙ Helianthus annuus
(sunflower) seed oil ∙ Copernicia cerifera cera (carnauba) wax ∙ Persea gratissima
(avocado) oil ∙ Ribes nigrum (blackcurrant) seed oil ∙ Glycerin ∙ Rubus idaeus (arctic
raspberry) seed oil ∙ Oxycoccus palustris (arctic cranberry) seed oil ∙ Hippophae
rhamnoides (sea-buckthorn) berry oil ∙ Aqua ∙ Ethylhexyl palmitate ∙ Tribehenin ∙
Tocopherol (vitamin E) ∙ Sorbitan isostearate ∙ Rhododendron ferrugineum (alpine
rose) extract ∙ Rosmarinus officinalis (rosemary) leaf extract ∙ Palmitoyl oligopeptide ∙
[+/- Mica, Tin oxide, CI 77891, CI 15850, CI 19140, CI 77491]
- Ilmefnalaust
- Glútenlaust
- Ekki prófað á dýrum
- Inniheldur ekki
- Paraben
- PEG-efni
- Þalöt (Phthalates)
- Petrolatum (jarðolíuhlaup)











