Lýsing
Öflug djúphreinsun sem sameinar ávaxtasýrur og ensím til að hreinsa húðina á áhrifaríkan hátt, fjarlægja dauðar húðfrumur og bæta húðáferð. Gefur húðinni sléttara, ferskara og ljómandi yfirbragð.
Helstu kostir
- Þreföld virkni: AHA-sýrur + ensím + “Mechanical peeling”
- Hreinsar húðina og stuðlar að endurnýjun
- Sléttir húðáferð og gefur fallegan ljóma
- Hjálpar til við að jafna ójafna húðáferð
- Tilvalið fyrir líflausa, óhreina eða grófari húð
- Hentar öllum húðgerðum
- „Green Glow“-áhrif frá náttúrulegum ávaxtasýrum
- Án steinefnaolíu, sílikons, örplasts, PEG-fleytiefna og litarefna
Virk innihaldsefni
ACB Fruit Mix, Greenth, Keratoline™, glycolic acid og náttúrulegar sellulósaagnir.
Notkun
Notið 1–2 sinnum í viku eftir húðgerð. Berið þunnt lag á hreina og þurra húð og látið virka í um 3 mínútur fyrir viðkvæma húð eða allt að 8 mínútur fyrir aðrar húðtgerðir. Nuddið síðan varlega þar til efnið rúllast af ásamt dauðum húðfrumum. Skolið vandlega og notið andlitsvatn á eftir. Forðist augn- og munnsvæði.
Þreföld flögnun. Hreinari húð. Meiri ljómi.







