Súkkulaðivax er aðalega notað í brazilian vax og á aðra viðkvæma staði, það er ekki eins sársaukamikið og venjulegt vax vegna olíanna sem eru í vaxinu. Súkkulaðivax festist ekki við húðina vegna þess það er ríkt af góðum olíum t.d laxerolíu, vegna olíanna er ekkert álag á húðina og vaxið umlykur sig um hárin og tekur þau frá rót. Eftir súkkulaðivax er húðin ekki eins rauð og ert eins og eftir venjulegt vax. Við notum súkkulaði vax í andlit, nára, undir hendur, braz, aftan á hálsi, nefi, eyrum og á augabrúnir og aðra viðkvæma staði.
Á önnur stærri svæði eins og t.d fætur,bringu og bak notum við spaðavax sem er einnig ríkt af olíum og fer betur með húðina en gamla rúlluvaxið og er miklu fljótlegra.