Lýsing
THE ORIGINAL since 1967
– Róandi, verndandi og hyljandi –
Litað dagkrem sem róar, verndar og styður við endurnýjun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum og er sérstaklega gott fyrir húð sem er viðkvæm, ert eða rauð.
Helstu áhrif og kostir
- Róar ertingu, roða og kláða
- Hjálpar til við að draga úr bólgum og styður við endurnýjun húðar
- Hylur roða, óhreinindi, stækkaðar svitaholur og litabreytingar

- Jafnar húðlit og gefur sléttara og geislandi yfirbragð
- Hreinsandi og kemur jafnvægi á húðina án þess að þurrka hana
- Hentar bæði sem meðferðarkrem og farði
- Hægt að nota á allt andlitið eða staðbundið
- Gott eftir meðferðir á borð við GREEN PEEL® Herbal Peeling Classic og leysimeðferðir
- Hentar einnig við minniháttar húðertingu, sólbruna, frunsu og kláða eftir skordýrabit
- Veitir daglega vörn gegn umhverfisáhrifum
- Án parabena og steinefnaolíu
Virk innihaldsefni
Zinc oxide, titanium dioxide* , lakkrísrótarþykkni, panthenol, allantoin, hveitikímolía, bisabolol og shea-smjör.
*Titanium dioxide er ekki í litnum Dark Brown.
Kemur í 15ml






