Hydra Maximum Day Cream 2ml

50kr.

50 á lager

Lýsing

Mikill raki fyrir þurra og grófa húð

Öflugt rakakrem með hámarksstyrk rakagefandi og rakabindandi innihaldsefna. Sérstök MoistureLab-tækni hjálpar til við að veita raka frá dýpri lögum húðarinnar upp á yfirborðið og styður við getu húðarinnar til að halda í rakann. Húðin verður mýkri, sléttari og betur nærð.

Helstu kostir

  • Veitir djúpan og langvarandi raka
  • Sléttir grófa og þurra húð
  • Hjálpar til við að draga úr sýnilegum hrukkum og þurrklínum
  • Hjálpar húðinni að halda í og varðveita raka
  • Nærir, verndar og styrkir húðina
  • Inniheldur nærandi náttúrulegar olíur og shea-smjör
  • Sérstök MoistureLab-tækni fyrir markvissa rakagjöf
  • Hentar sérstaklega vel fyrir mjög þurra húð
  • Hefur reynst vel fyrir húð með psoriasis og exem
  • Án parabena, steinefnaolíu, sílikons og PEG-fleytiefna

Virk innihaldsefni
MoistureLab Technology sameinar Hydranov P, ectoin, hyalúrónsýru og plöntuolíur sem veita raka, næringu og frumuvernd. Tego® Natural Betaine, inositol, Lara Care™ A200 og Pentavitin® hjálpa til við að binda og viðhalda raka í húðinni. Macadamiaolía mýkir og styður við endurnýjun, ólífuolía veitir andoxunar- og húðvernd og shea-smjör nærir og róar húðina.

Notkun
Berið jafnt á andlit, háls og bringu að morgni eftir hreinsun.

Djúpur raki. Mýkri húð. Sterkari húðvörn.

Kemur í 15ml og 50ml